Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. febrúar 2021 06:00
Victor Pálsson
Tuchel ekki búinn að taka ákvörðun varðandi Giroud
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, er ekki búinn að taka ákvörðun um hvort samningur framherjans Olivier Giroud verði framlengdur.

Giroud á minna en fimm mánuði eftir af samningi sínum á Stamford Bridge en hann er 34 ára gamall franskur landsliðsmaður.

Tuchel tók aðeins við af Frank Lampard fyrir þremur vikum og hefur ekki haft tíma til að taka slíkar ákvarðanir.

„Það hefur ekkert verið ákveðið ennþá því það er of snemmt á þesusm tímapunkt tímabilsins," sagði Tuchel.

„Ég hef ekki haft nógu mikinn tíma til að taka þessar ákvarðanir því ég byrjaði bara fyrir þemur vikum."

„Hann er einn sá besti í boxinu, hann er líkamlega sterkur og er með frábæra fyrstu snertingu þegar hann tekur við boltanum. Hann er einnig mjög góður skallamaður."
Athugasemdir
banner
banner
banner