Samtök palestínskra íþróttafélaga hafa sent inn formlega kvörtun þar sem Gianni Infantino og Aleksander Ceferin, forsetar FIFA og UEFA, eru sakaðir um aðild að stríðsglæpum gegn palestínsku þjóðinni.
Palestínskir landeigendur, sem misst hafa landsvæði sín til Gyðinga í svokölluðum ólöglegum landtökubyggðum, skrifuðu einnig undir kvörtunina sem telur 120 blaðsíður.
Ýmis mannréttindasamtök skrifuðu einnig undir kvörtunina, meðal annars frá Írlandi, Skotlandi og Kanada.
Infantino og Ceferin eru sakaðir um virkan stuðning við ólögleg athæfi Ísraela í Palestínu. Þeir eru sakaðir um að hafa barist ötullega fyrir því, í samráði við ísraelsk og bandarísk stjórnvöld, að félagslið og landslið frá Ísrael fengu áfram að taka þátt í fótboltakappleikjum á vegum FIFA og UEFA þrátt fyrir afar grimmilega innrás í Palestínu.
Þá eru þeir sakaðir um að hjálpa fótboltafélögum sem eru stödd á ólöglegum landtökubyggðum með að veita þeim þátttökurétt í ísraelskum deildarkeppnum og fjármagn til uppbyggingar.
Í kvörtunarskýrslunni eru ýmis atriði útlistuð þar sem talin upp eru ýmis lögbrot sem FIFA og/eða UEFA hafa átt beina aðild að. Meðal annars að aðstoða við fólksflutning á ólöglegum landtökubyggðum, sem fer gegn Rómarsamþykkt Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Ísland skrifaði meðal annars undir Rómarsamþykktina árið 1998.
Annað brot á Rómarsamþykktinni er sú að palestínsku fólki var meinuð innganga á fótboltaleiki á ólöglegum landtökusvæðum. Palestínubúar mega hvorki horfa á leikina né spila fyrir ísraelsku fótboltaliðin á ólöglegu landtökusvæðunum eða þjálfa þau.
Kvörtunin langa var formlega send inn til ICC, Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Nú er boltinn hjá þeim.
Athugasemdir



