Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 20. mars 2019 20:40
Brynjar Ingi Erluson
Bað Koeman um ráð áður en hann samdi við Barcelona
Frenkie de Jong í leik með Ajax í Meistaradeild Evrópu
Frenkie de Jong í leik með Ajax í Meistaradeild Evrópu
Mynd: Getty Images
Frenkie De Jong, leikmaður hollenska landsliðsins, bað Ronald Koeman um ráð áður en hann samdi við spænska stórliðið Barcelona.

Koeman þjálfar í dag hollenska landsliðið en hann lék árum áður með Barcelona og veit því mikið um félagið.

De Jong, sem leikur með Ajax, samdi sjálfur við Barcelona á dögunum og gengur hann til liðs við félagið í sumar en hann hefur rætt mikið við Koeman um Börsunga.

„Ég er búinn að spyrja Koeman spjörunum úr varðandi Barcelona því hann var mjög sigursæll þar. Ég vildi bara fá að vita hvernig það er að búa þarna," sagði De Jong.

„Það er mjög notalegt að vita allt um Barcelona áður en maður flytur þangað. Ég ræddi við hann um Barcelona bæði áður og eftir að ég skrifaði undir því það voru alltaf orðrómar í gangi."

„Hann sagði mér að fara í félag þar sem ég myndi fá að spila, það skipti hann mestu. Ég er viss um að hann eigi sér uppáhalds lið en hann hugsar aðallega um að maður fái reynsluna af því að spila með svona stóru félagi,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner