Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 20. mars 2019 10:51
Elvar Geir Magnússon
Peralada, Katalóníu
Er Hannes á leið í Val? - „Það verður bara að koma í ljós"
Icelandair
Hannes skutlar sér á æfingu í Peralada.
Hannes skutlar sér á æfingu í Peralada.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður hefur sterklega verið orðaður við Íslandsmeistara Vals. Hannes er í herbúðum Qarabag í Aserbaidsjan en er í frystikistunni þar og fær ekkert að spila.

Hannes ræddi við fjölmiðla í dag og var spurður að því hvort hann væri á heimleið?

„Það verður bara að koma í ljós. Ég gerði tveggja ára samning við Qarabag. Planið var að vera þar í tvö ár og það er það enn. Svo er ég ekkert hress með stöðuna og það er ekkert leyndarmál, ég er ekkert að spila og þá geta hlutirnir breyst. Við þurfum bara að sjá hvað gerist. Núna er ég samningsbundinn Qarabag," segir Hannes.

Hann vill ekki útiloka það að spila í Pepsi Max-deildinni í sumar.

„Maður getur ekkert útilokað neitt í fótbolta. Hvort ég verði í Pepsi-deildinni, í Aserbaidsjan eða annars staðar er óráðið. Það er bara sannleikurinn. Þetta er snúin staða hjá mér í félagsliðinu og þetta er bara tekið dag fyrir dag. Menn eru að spjalla saman og sjáum hvað kemur út úr því."

Hver er skýringin á því að hann fær skyndilega ekkert að spila með Qarabag?

„Þetta er milljón dollara spurningin. Ég var kominn í góðan takt með liðinu í október - nóvember og síðan spila ég einn slakan leik gegn Sporting Lissabon. Það hefur verið frost síðan. Það gerðist eitthvað á þessum tíma sem gerðist frá því að félagið var æst í að fá mig og gat ekki beðið eftir undirskrift og þangað til að það var U-beygja og engar mínútur. Þú þarft að heyra í félögum mínum úti því ég hef ekki svörin."

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Hannes meðal annars um landsleikina framundan og hungrið í hópnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner