Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   mið 20. mars 2019 10:31
Elvar Geir Magnússon
Peralada, Katalóníu
Gylfi ekki með miklar áhyggjur: Getið dæmt okkur af þessum leikjum
Icelandair
Gylfi á landsliðsæfingu
Gylfi á landsliðsæfingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson hefur ekki miklar áhyggjur þó langt sé síðan Ísland vann leik.

Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.

Gylfi ræddi við fjölmiðla fyrir æfingu í Peralada í dag.

„Persónulega hef ég ekkert rosalega miklar áhyggjur af þessu. Það hefur vantað heilmikið af lykilmönnum hjá okkur og við höfum ekki efni á því að tapa mörgum leikmönnum. Sem betur fer er ný keppni að byrja og þið getið dæmt okkur af þessum leikjum," segir Gylfi.

Hungrið enn til staðar
„Við erum flestir á besta aldri í liðinu. Möguleikinn á að komast á fleiri stórmót er til staðar. Metnaðurinn hjá flestum er að upplifa sömu tilfinningar og móment og við höfum gert undanfarin ár. Hungrið er enn til staðar."

Gylfi segir að menn megi ekki vanmeta Andorra.

„Ef við höldum að þetta verði létt þá getur þetta orðið erfitt. Það er erfitt að spila á móti þeim úti. Við þurfum að byrja af krafti og vonandi skorum við sem fyrst. Þú þarft að taka sex stig gegn Andorra til að komast í lokakeppnina," segir Gylfi en í viðtalinu ræðir hann einnig um Everton.
Athugasemdir
banner
banner
banner