Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. mars 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska landsliðið gerir fjögurra ára samning við Armani
Mynd: Getty Images
Tískurisinn Emporio Armani er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við ítalska landsliðið.

Hann mun hanna fatnað karla- og kvennalandsliðs Ítalíu og U21 árs landsliðsins.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Armani fer í samstarf við ítalska landsliðið í knattspyrnu því fyrirtækið hannaði einnig fatnað landsliðsmanna fyrir HM 1994.

Auk þess hefur Armani hannað fatnað ítalskra íþróttamanna undanfrönum tveimur Ólympíuleikum, 2012 og 2016.

„Við verðum vafalaust glæsilegir, vonandi vinnum við líka," sagði Roberto Mancini landsliðsþjálfari.



Athugasemdir
banner
banner
banner