Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mið 20. mars 2019 15:08
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Þór: Við erum með gríðarlega sterkt lið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson er búinn að velja kvennalandsliðið fyrir æfingaleikina gegn Suður-Kóreu í landsleikjahlénu.

Fimm breytingar eru gerðar á landsliðshópnum sem tók þátt í Algarve æfingamótinu. Jón Þór segir breytingarnar vera gerðar til að gefa þjálfarateyminu skýrari hugmyndir fyrir undankeppnina sem hefst næsta haust.

„Við gerum fimm breytingar á hópnum og það er í takt við það sem við höfum verið að gera. Við erum enn að þreifa fyrir okkur og notum þessi verkefni til að kanna hópinn," sagði Jón Þór í viðtali við Fótbolta.net.

„Við þurfum að komast að því áður en undankeppnin byrjar hverjir geta leyst þessar stöður af hólmi. Það geta alltaf komið upp meiðsli og leikbönn og annað slíkt í undankeppninni.

„Ég er gríðarlega ánægður með þennan hóp. Þú talar um sterkasta liðið og að það vanti marga sterka leikmenn en við erum líka með marga sterka leikmenn og gríðarlega sterkt lið."


Leikirnir munu fara fram 6. og 9. apríl í Suður-Kóreu. Undankeppnin fyrir EM hefst í ágúst og eru Svíþjóð, Lettland, Slóvakía og Ungverjaland með Íslandi í riðli.

Hægt er að hlusta á viðtali í heild í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner