Kjartan Henry Finnbogason leikmaður Vejle í Danmörku setti á Twitter færslu sína nú rétt í þessu afar athyglisvert myndbandbrot úr tónlistarmyndbandinu Sigta salta með Steinda Jr. og Ladda.
Í textanum í laginu segir til að mynda „Ég er hættur við að hætta við að hætta við," og er Kjartan Henry þá sennilega að vitna í atburði gærdagsins þegar Viðar Örn Kjartansson framherji Hammarby í Svíþjóð var kallaður inn í hópinn hjá íslenska landsliðinu.
Í textanum í laginu segir til að mynda „Ég er hættur við að hætta við að hætta við," og er Kjartan Henry þá sennilega að vitna í atburði gærdagsins þegar Viðar Örn Kjartansson framherji Hammarby í Svíþjóð var kallaður inn í hópinn hjá íslenska landsliðinu.
Viðar tilkynnti í október að hann væri hættur með íslenska landsliðinu. Erik Hamrén valdi hann síðan í hópinn í gær þar sem Björn Bergmann Sigurðarson er að glíma við meiðsli og verður ekki með landsliðinu gegn Andorra og Frakklandi.
-- Kjartan Henry (@kjahfin) March 20, 2019
Á svipuðum tíma í gær og Viðar Örn var kallaður inn í landsliðið þá setti Kjartan Henry aðra Twitter-færslu þar sem hann býður ekki upp á neina langloku heldur einfaldan kall með rennilás fyrir munninn á sér.
?
-- Kjartan Henry (@kjahfin) March 19, 2019
Athyglisvert útspil hjá framherjanum sem setur nú ekki færslu á Twitter á hverjum degi. Ofarlega á Twitter reikningi Kjartans má sjá færslu frá því í maí 2018 þar sem aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson hrósar Kjartani fyrir „klikkaða innkomu," í Superligaen.
Bilaðar senur úr @Superligaen í gær, @kjahfin með klikkaða innkomu í leikinn. Horsens í lykilhlutverki í uppgjöri toppliðana. #lovethisgame pic.twitter.com/ptLYLtuv6G
-- Freyr Alexandersson (@freyrale) May 19, 2018
Athugasemdir