Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. mars 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Margrét Lára skoraði tvö í sigri á Blikum
Margrét Lára skoraði tvö mörk fyrir Val
Margrét Lára skoraði tvö mörk fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 3 - 1 Breiðablik
1-0 Margrét Lára VIðarsdóttir ('3 )
1-1 Agla María Albertsdóttir ('43 )
2-1 Kristín Dís Árnadóttir ('62 )
3-1 Margrét Lára Viðarsdóttir ('85 )

Valur lagði Breiðablik að velli, 3-1, er liðin mættust í A-deild Lengjubikars kvenna í gær en leikurinn fór fram á Origo-vellinum.

Margrét Lára Viðarsdóttir kom Val yfir á 3. mínútu áður en Agla María Albertsdóttir jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.

Kristín Dís Árnadóttir varð fyrir því óláni að koma knettinum í eigið net 62. mínútu. Margrét Lára gulltryggði svo sigur Vals á 85. mínútu lokatölur því 3-1.

Valur vinnur riðilinn örugglega með 15 stig af 15 mögulegum en Breiðablik á tvo leiki til góða. Liðið er með 6 stig og getur því mest náð 12 stigum í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner