Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 20. mars 2019 22:46
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Sveindís Jane skoraði þrennu í sigri á KR
Sveindís Jane skoraði þrennu fyrir Keflavík
Sveindís Jane skoraði þrennu fyrir Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Keflavík 4 - 0 KR
1-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('5 )
2-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('21 )
3-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('23 )
4-0 Maired Clare Fulton ('32 )

Sveindís Jane Jónsdóttir gerði þrennu er Keflavík vann KR 4-0 í B-deild Lengjubikarsins í kvöld.

Sveindís, sem er ein efnilegasta knattspyrnukona Íslands, kom Keflavík yfir á 5. mínútu áður en hún bætti við öðru á 21. mínútu. Þá fullkomnaði hún þrennuna tveimur mínútum síðar.

Maired Clare Fulton skoraði fjórða og síðasta mark Keflavíkur á 32. mínútu og þar við sat.

Lokatölur 4-0 og Keflavík í efsta sæti B-deildar með 9 stig á meðan KR er í 5. sæti með 3 stig.
Athugasemdir
banner
banner