Miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson ræddi við fjölmiðla fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Peralada í dag.
„Við erum spenntir fyrir þessu og það verður gaman að liðið geti loksins farið að sýna sitt rétta andlit aftur," sagði Ragnar meðal annars.
Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.
Sjáðu viðtalið við Ragnar í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar hann um verkefnið, Rússland og fleira.
Athugasemdir