Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 20. mars 2019 07:30
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Már: Þurfum að klára þetta verkefni eins og menn
Icelandair
Rúnar á landsliðsæfingu í Peralada.
Rúnar á landsliðsæfingu í Peralada.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í sínum fyrsta landsleik árið 2012, vináttuleik gegn Andorra.

Á föstudaginn leikur Ísland gegn Andorra í sínum fyrsta leik í nýrri undankeppni EM.

„Fyrsti landsleikurinn er alltaf sérstakur, þó ég muni ekki mikið eftir honum. Það er jákvætt að ná að skora. Upplifunin var þó ekki eins stór og margir halda. Það voru kannski tíu manns í stúkunni. Ekkert sem benti til þess að það væri einhver landsleikur í gangi! sagði Rúnar Már við Fótbolta.net.

Markið hans í leiknum var ansi huggulegt.

„Þarna var maður yngri og ferskari og hljóp meira með boltann. Það var frábært að ná að skora og maður á kannski að vera búinn að bæta við en það kemur."

Ísland hefur unnið alla landsleiki sína gegn Andorra en liðið hefur aldrei verið eins skipulagt og það er í dag.

„Úrslitin þeirra gefa það til kynna. Þeir múra fyrir markið, brjóta mikið og tefja. Við getum ekkert breytt því. Við spilum okkar leik og klárum þetta verkefni eins og menn."

Rúnar hefur staðið sig vel í síðustu landsleikjum sem hann hefur spilað. Hvaða væntingar gerir hann varðandi spiltíma í komandi leikjum?

„Ég fékk nokkra leiki í haust og náði vonandi að stimpla mig inn. Ég er alltaf klár. Ég var á bekknum í mörg ár og geri ekki neinar væntingar en verð alltaf 100% klár," segir Rúnar en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner