Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. mars 2019 11:27
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: blikar 
Viktor Örn framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örn Margeirsson er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik.

Viktor Örn er varnarmaður fæddur 1994 og lék hann 20 leiki með Blikum í Pepsi-deildinni síðasta sumar.

Hann hóf meistaraflokksferilinn með Augnabliki og lék fyrir HK sumarið 2014 áður en hann skipti yfir til Breiðabliks. Hann hafði viðkomu hjá ÍA sumarið 2017 en er nú búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Blikum.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir Breiðablik að Viktor Örn sé búinn að skrifa undir langtímasamning við félagið. Það eru spennandi tímar framundan hjá liðinu okkar," segir á vef Blika, blikar.is.
Athugasemdir
banner
banner
banner