Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. mars 2019 14:20
Ívan Guðjón Baldursson
Vilhjálmur Alvar dæmir í undankeppni EM á laugardaginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenskt dómarateymi mun dæma landsleik Möltu og Færeyja í undankeppni fyrir EM 2020.

Liðin mætast á Möltu næsta laugardag í fyrstu umferð undankeppninnar.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma leikinn og verður hann með Gylfa Már Sigurðsson og Birki Sigurðarson sem aðstoðardómara. Ívar Orri Kristjánsson verður fjórði dómari.

Það verður áhugavert að sjá hvernig frændum okkar frá Færeyjum gengur á Möltu en næstu andstæðingar liðsins verða talsvert erfiðari. Næsti leikur er gegn Rúmeníu en þar á eftir eru leikir gegn Spáni, Noregi og Svíþjóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner