Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. mars 2019 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Vináttulandsleikir: Leikmaður Liverpool hetja Wales
Ben Woodburn skoraði eina mark Wales
Ben Woodburn skoraði eina mark Wales
Mynd: Getty Images
Nokkrir vináttulandsleikir fóru fram í kvöld en Ben Woodburn, leikmaður LIverpool, tryggði Wales sigur á Trínidad og Tóbagó, með marki undir blálokin.

Saga Woodburn á þessu tímabili hefur verið stórfurðuleg en hann var lánaður frá Liverpool til Sheffield United. Honum tókst ekki að brjóta sér leið inn í liðið og sneri aftur til Liverpool skömmu síðar og hefur spilað með unglinga- og varaliðinu.

Í janúar átti hann möguleika á því að fara á lán til Hull en ekkert varð úr skiptunum og er hann því enn í varaliði Liverpool. Þrátt fyrir það er hann mikilvægur partur af velska landsliðinu og reyndist hann hetjan í kvöld er hann skoraði í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Hann skoraði af stuttu færi eftir langa sókn. Á sama tíma gerðu Þýskaland og Serbía 1-1 jafntefli þar sem Leon Goretzka gerði mark Þýskalands á meðan Luka Jovic gerði mark Serbíu.

Úrslit og markaskorarar:

Wales 1 - 0 Trínidad og Tóbagó
1-0 Benjamin Woodburn ('90 )


Þýskaland 1 - 1 Serbía
0-1 Luka Jovic ('12 )
1-1 Leon Goretzka ('69 )


Rautt spjald:Milan Pavkov, Serbia ('90)
Óman 5 - 0 Afganistan
1-0 Ahmed Kano ('9 )
2-0 Raed Ibrahim Saleh ('27 )
3-0 Mohamed Al Balushi ('45 )
4-0 Ahmad Al Mukhaini ('49 )
5-0 Akaak ('90 )


Malasía 0 - 1 Singapúr
0-1 Faris Ramli ('82 )


Írak 1 - 0 Sýrland
1-0 Justin Meram ('73 )
Athugasemdir
banner
banner