Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. mars 2019 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vinicius: Barca bauð meiri pening en ég valdi Real
Mynd: Getty Images
Vinicius Junior gekk í raðir Real Madrid í fyrra og staðfesti hann í útvarpsviðtali hjá Cadena SER að hann hafi hafnað tilboði frá Barcelona.

Vinicius var keyptur fyrir tæplega 40 milljónir punda þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gamall. Hann segir að Marcelo og Casemiro hafi hjálpað honum að taka ákvörðun.

„Við faðir minn skoðuðum aðstæður hjá báðum félögum og okkur líkaði vel við allt sem við sáum. Barcelona vildi gefa mér hærri laun en við völdum besta verkefnið, sem okkur fannst vera hjá Real Madrid," sagði Vinicius, sem hefur verið öflugur á tímabilinu og er búinn að vera valinn 19 sinnum í byrjunarliðið frá komu sinni.

„Svo talaði ég við Casemiro og Marcelo og þeir hjálpuðu mér að taka ákvörðun. Þeir sögðu mér að hlutirnir gerast hratt innan félagsins og að þeir sem verðskuldi tækifæri fái þau."
Athugasemdir
banner
banner
banner