Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. apríl 2019 19:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Guardiola: Foden er meira en tilbúinn
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Getty Images
Phil Foden reyndist hetja Manchester City í dag þegar liðið sigraði Tottenham í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar.

Foden fékk tækifæri í byrjunarliði liðsins í dag og skoraði strax á 5. mínútu í 1-0 sigri.

Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City er mjög ánægður með hinn 18 ára gamla Foden.

„Foden er meira en tilbúinn, hann skoraði mark í dag og barðist af fullum krafti inn á vellinum."

„Að spila í úrvalsdeildinni er frábær reynsla fyrir hann, hann er kraftmikill leikmaður sem passar frábærlega inn í leikmannahópinn okkar," sagði Guardiola.

Næsta verkefni Manchester City er heimsókn til nágranna þeirra í Manchester United, liðin mætast á miðvikudaginn á Old Trafford,
Athugasemdir
banner
banner
banner