Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. apríl 2019 20:29
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Jafntefli niðurstaðan í stórleiknum
Inter er í 3. sæti.
Inter er í 3. sæti.
Mynd: Getty Images
Inter 1 - 1 Roma
0-1 Stephan El Shaarawy ('14 )
1-1 Ivan Perisic ('61 )

Inter tók á móti Roma í stórleik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni, níu leikir fóru fram í dag en það er ekki leikið á morgun páskadag á Ítalíu.

Það voru gestirnir í Roma sem komust yfir í leiknum þegar Stephan El Shaarawy skoraði á 14. mínútu, staðan var 0-1 í hálfleik.

Ivan Perisic jafnaði metin á 61. mínútu og það mark reyndist vera lokamark leiksins.

Inter er í 3. sæti með 61 stig en Roma í 5. sæti, einu stigi á eftir AC Milan sem er í 4. sæti sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner