Tammy Abraham, sóknarmaður Chelsea, segir að hann myndi elska að spila með Marcus Rashford í enska landsliðinu.
Abraham er 22 ára en hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir England í nóvember í 7-0 sigri gegn Svartfjallalandi.
Í viðtali segist Abraham hafa heillast af Rashford þegar þeir æfðu saman.
Abraham er 22 ára en hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir England í nóvember í 7-0 sigri gegn Svartfjallalandi.
Í viðtali segist Abraham hafa heillast af Rashford þegar þeir æfðu saman.
„Skottæknin sem hann er með, tæknileg geta, fæturnir á honum, hvernig hann leikur á andstæðinga... það er bara unun að horfa á hann spila," segir Abraham.
Það verður þó erfitt fyrir Abraham að fá að spila með Rashford í enska landsliðinu því innan liðsins er Harry Kane.
„Hann er besta 'nía' í heiminum. Það er klikkað að fá að æfa með Harry. Boltinn sogast til hans og hann setur hann fyrirhafnalítið í samskeyting. Hann er ótrúlegur."
Athugasemdir