mán 20. apríl 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur að Xavi taki við Barcelona fyrr eða síðar
Xavi.
Xavi.
Mynd: Getty Images
Bojan Krkic, leikmaður Montreal Impact í MLS-deildinni, telur það aðeins vera tímaspursmál þangað til að Xavi verði orðinn þjálfari Barcelona.

Bojan spilaði með Xavi hjá Barcelona á sínum tíma, en Xavi hefur frá því á síðasta ári þjálfað Al Sadd í Katar. Hann hefur verið sterklega orðaður við endurkom til Barcelona sem stjóri félagsins.

Barcelona ræddi við Xavi eftir að Ernesto Valverde var rekinn fyrr á þessu tímabili, en hann vildi ekki taka við á miðju tímabili. Að mati Bojan þá mun fyrrum miðjumaðurinn taka við Börsungum fyrr eða síðar.

„Ég kann vel við það þegar fólk sem kemur upp hjá félaginu enda hjá því," sagði Bojan við EFE. „Það þekkja fáir staðinn jafnvel og hann. Það eru örlög að Barcelona og Xavi munu koma aftur saman."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner