Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. maí 2019 14:38
Elvar Geir Magnússon
Dómari lést á hæsta fótboltavelli heims
Mynd: Skjáskot
Dómari í efstu deild í Bólivíu fékk hjartaáfall og lést þegar hann var að störfum á hæsta fótboltavelli heims.

Victor Huge Hurtado var aðeins 32 ára en hann féll skyndilega til jarðar í miðjum leik Always Ready og Oriente Petrolero.

Leikurinn fór fram á El Alto Municipal leikvangnum sem er 4.150 metra fyrir ofan sjávarmál. Enginn fótboltavöllur sem notaður er fyrir atvinnufótbolta er í meiri hæð.

Hurtado fékk hjartaáfall snemma í seinni hálfleik og var svo úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi.


Athugasemdir
banner
banner
banner