Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
   mán 20. maí 2019 22:22
Sverrir Örn Einarsson
Josip Zeba: Var hávaxnastur í deildinni í Víetnam
Josip Zeba
Josip Zeba
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Josip Zeba var örlagavaldur í leik Grindavíkur og Fylkis sem lauk með sigri Grindavíkur í kvöld. Zeba var traustur í vörn heimamanna og bætti svo um betur með að tryggja þeim sigur með marki eftir hornspyrnu í síðari hálfleik.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Fylkir

„Ég er mjög ánægður við mættum til sigurs og fannst við verðskulda sigurinn í dag," sagði stuttorður Zeba um hvað skóp sigur þeirra gulklæddu í dag.

Zeba myndar sterkt miðvarðarpar með Marc McAusland sem kom til Grindavíkur frá Keflavík í vetur.

„Það er mjög auðvelt að spila með Marc en það á við um alla hjá þessu félagi, ég er nýr en við erum með marga nýja leikmenn en andinn hjá félaginu er mjög góður sem gerir vinnuna auðveldari og við erum pressulausir.“

Zeba hefur komið víða við á ferlinum en hvernig finnst honum að spila á Íslandi?

„Það er munur á milli allra deilda. Deildin hér er góð og gæða leikmenn en deildin hér er líka kraftmeiri og leikmenn mjög sterkir en t.d. þegar ég var í Víetnam var ég sá hávaxnasti í deildinni og allir aðrir kannski 55kg,“ sagði léttur Josip Zeba en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner