FH fékk Val í heimsókn á Kaplakrikavöll í kvöld og unnur 3-2 sigur í hörku spennandi leik. Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals sagði liðið spila vel en lítið væri að falla með þeim undanfarið. Aðspurður út í hvort einhver vandamál séu í hópnum sagði Óli að svo væri ekki.
Lestu um leikinn: FH 3 - 2 Valur
„Svona leikir vinnast oftast á föstum leikatriðum þegar tvö góð lið mætast. Mér fannst spilamennskan góð þótt það sé ekki gott að fá á sig þrjú mörk, þá er það bara stundum þannig þegar hlutirnir eru ekki að detta með manni. Þú uppskerð bara það sem staðan segir, við þurfum bara að halda áfram, það er ekkert flókið. Staðan á leikmannahópnum er bara eins og hún var í upphafi móts, ekkert vesen á okkur."
Gary Martin var ekki í leikmannahópnum í dag frekar en gegn Fylki og sagan segir að hann hafi ekki enn fengið að æfa með liðinu, Óli vildi ekkert tjá sig um það.
„Nei ég get ekkert sagt um það."
Athugasemdir