Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 20. maí 2020 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: Fimmti sigur BATE í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dynamo Brest 1 - 3 BATE Borisov
0-1 Stanislav Dragun ('31)
1-1 Artem Milevskiy ('40)
1-2 Pavel Nekhajchik ('73)
1-3 Nemanja Milic ('80)

Willum Þór Willumsson kom inn á 69. mínútu er BATE Borisov lagði Dynamo Brest að velli í efstu deild hvítrússneska boltans.

Staðan var 1-1 þegar Willum var skipt inná og skoraði BATE tvö mörk á næstu tíu mínútum.

Þetta var fimmti sigur BATE í röð í deildinni og er liðið með fjögurra stiga forystu á toppinum. Næstu lið fyrir neðan eiga þó leik til góða.

Willum er mikilvægur hlekkur í liði BATE þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall. Hann er búinn að spila alla leiki Bate á tímabilinu nema einn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner