Fyrsti leikur dagsins á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi er í B-riðli þar sem Portúgal mætir Marokkó leikurinn hefst 12:00.
Portúgal er með eitt stig í riðlinum eftir 3-3 jafntefli gegn Spán í fyrstu umferðinni. Marokkó er hinsvegar án stiga eftir tap gegn Íran.
Benedikt Bóas Hinriksson, stjörnublaðamaður spáir fyrir um leik Portúgals og Marokkó.

Portúgal 4 - 1 Marokkó (klukkan 12:00)
Ég ætla að spá því og Portúgal keyrir þægilega yfir Marokkó og staðan verði orðin 3-0 eftir 23 mínútur. Ronaldo skori tvö fyrstu mörkin Og Andre Silva það þriðja. Eftir það sigla þeir rólega en henda í fjórða markið á 67. mínútu. Það verður Andre Silva sem kemst á blað. Þá slaka þeir fullmikið á og Marokko minnkar munin á 86. mínútu eftir hornspyrnu. Þar klikkar dekkningin og Faycal Fajr smyr hann í samskeytin.
Athugasemdir