Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 20. júní 2018 14:11
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Úrúgvæ og Sádí-Arabíu: Skipta út köntunum
Mynd: Getty Images
Úrúgvæjar gera tvær breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Egypta að velli í fyrstu umferð. Carlos Sanchez og Cristian Rodriguez koma inn í liðið í stað Giorgian De Arrascaeta og Nahitan Nandez.

Þetta gera Úrúgvæjar til að þétta miðjuna, en Sádí-Arabía tapaði opnunarleiknum 5-0 og þarf helst sigur í dag.

Varnarlínan helst óbreytt, rétt eins og sóknarlínan þar sem Luis Suarez og Edinson Cavani virðast ósnertanlegir.

Sádar gera fjórar breytingar á liðinu sem tapaði fyrir Rússum. Al-Muwallad kemur inn í sóknina, Hattan Bahbir fer á hægri kantinn og þá skipta þeir einnig um markvörð og miðvörð.

Úrúgvæ getur slegið bæði Sádí-Arabíu og Egyptaland úr leik með sigri í dag.

Úrúgvæ: Muslera; Varela, Godin, Gimenez, Caceres; Sanchez, Vecino, Bentancur, Rodriguez; Suarez, Cavani.

Sádí-Arabía: Al-Owais, Al-Burayk, Al-Bulaihi, Hawsawi, Al-Shahrani, Otayf, Bahebri, Al-Jassim, Al-Faraj, Al-Dawsari, Al-Muwallad.
Athugasemdir
banner
banner
banner