Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 20. júní 2018 16:52
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Suarez afgreiddi Sáda - Úrslitaleikur við heimamenn
Mynd: Getty Images
Úrúgvæ 1 - 0 Sádí-Arabía
1-0 Luis Suarez ('23)

Luis Suarez gerði eina mark leiksins er Úrúgvæ tryggði sig í 16-liða úrslit Heimsmeistaramótsins. Sádí-Arabía er úr leik, rétt eins og Egyptaland.

Leikurinn var afar bragðdaufur en eina markið kom eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik. Markvörður Sádí-Arabíu fór í skógarhlaup og féll boltinn fyrir fætur Suarez sem var ekki í neinum vandræðum með að skora.

Sádar voru sprækir og héldu boltanum en fundu fáar glufur og fengu aðeins nokkur hálffæri í leiknum.

Úrúgvæjar voru rólegir og virtust sáttir með að liggja aftarlega og leyfa Sádum að halda knettinum.

Suarez og Edinson Cavani fengu báðir færi til að tvöfalda forystuna en komu boltanum ekki í netið.

Úrúgvæ mætir því heimamönnum í Rússlandi í síðasta leik riðilsins, þar sem Rússum nægir jafntefli til að enda í toppsætinu á markatölu.

Liðin mæta Portúgal og Spáni í 16-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner