ÍR byrjar vel undir stjórn Jóhannesar
Selfoss skaut sér aftur á toppinn, í það minnsta tímabundið, með 4-2 sigri á Tindastóli í kvöld. Tindastóll byrjaði leikinn vel og var óheppið að fá á sig fyrsta markið í leiknum.
Þór Llorens gerði það eftir að aukaspyrna hans fór í varnarmann og inn. Hrvoje Tokic tvöfaldaði forystuna tuttugu mínútum seinna eftir undirbúning frá Þór.
Þór Llorens gerði það eftir að aukaspyrna hans fór í varnarmann og inn. Hrvoje Tokic tvöfaldaði forystuna tuttugu mínútum seinna eftir undirbúning frá Þór.
Alvaro Igualada minnkaði muninn í upphafi seinni hálfleiks fyrir Stóla en Kenan Turidija kom Selfyssingum aftur tveimur mörkum yfir um stundarfjórðungi seinna.
Þór lagði svo aftur upp þegar Selfoss komst í 4-1 þá átti hann aukaspyrnu sem barst á Jökul Hermannsson. Benjamín Jóhannes Guðlaugsson skoraði svo sárabótarmark fyrir Tinstastól í uppbótartíma.
Á Vogaídýfuvellinum tapaði Þróttur Vogum gegn ÍR. ÍR komst yfir á 50. mínútu með marki frá Reyni Haraldssyni og Andre Abed gerði svo út um leikinn á 91. mínútu. Jóhannes Guðlaugsson stýrði ÍR í sinum fyrsta leik sem aðalþjálfari í kvöld. Ásgeir Aron Ásgeirsson var látinn taka pokann sinn fyrr í vikunni.
Í Akraneshöllinni vann Kári loksins sinn annan leik á tímabilinu. KFG kom í heimsókn og fékk rasskellingu. Kári skoraði fimm mörk á Garðbæinga og fyrsti sigur Kára síðan 4. maí staðreynd.
Stöðunda í deildinni má sjá neðst í fréttinni. Það getur tekið tíma fyrir töfluna að uppfærast.
Selfoss 4-2 Tindastóll
1-0 Þór Llorens Þórðarson ('17)
2-0 Hrvoje Tokic ('37)
2-1 Alvaro Cejudo Igualada ('46)
3-1 Kenan Turudija ('60)
4-1 Jökull Hermannsson ('72)
4-2 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson (91)
Þróttur V. 0-2 ÍR
0-1 Reynir Haraldsson ('50)
0-2 André Musa Solórzano Abed ('91)
Kári 5-0 KFG
1-0 Hlynur Sævar Jónsson ('18)
2-0 Guðfinnur Þór Leósson ('30)
3-0 Stefán Ómar Magnússon ('38)
4-0 Andri Júlíusson ('58, víti)
5-0 Róbert Ísak Erlingsson ('72)
Rautt Spjald: Guðjón Viðarsson Scheving, KFG('87), Tómas Orri Almarsson, KFG('89)
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir