fim 20. júní 2019 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baines mun taka sitt 13. tímabil hjá Everton
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Leighton Baines er búinn að skrifa undir nýjan samning við Everton og verður hjá félaginu til 2020.

Samningur hins 34 ára gamla Baines átti að renna út í lok þessa mánaðar en Everton ákvað að halda í hann.

Hann mun taka sitt 13. tímabil hjá Everton.

Baines verður til vara fyrir Lucas Digne sem var keyptur frá Barcelona síðasta sumar. Digne átti mjög flott fyrsta tímabil hjá Everton.

„Leighton er mikilvægur hluti af þessu félagi og mikill atvinnumaður," sagði Marco Silva, stjóri Everton. „Það mikilkvægasta er að hann er enn frábær fótboltamaður."

Gylfi Þór Sigurðsson leikur einnig með Everton.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner