Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. júní 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Declan Rice ekki fáanlegur í sumar
Mynd: Getty Images
West Ham hefur greint báðum Manchester-félögunum frá því að miðjumaðurinn Declan Rice sé ekki til sölu í sumar.

Breski fjölmiðillinn Sky Sports segir frá.

Manchester City og Manchester United eru áhugasömum Rice og spurðust fyrir um hann, en West Ham hefur engan áhuga á því að selja enska landsliðsmanninn.

Rice átti mjög gott tímabil 2018/19, hann lék 38 leiki fyrir West Ham og spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir England, eftir að hafa valið að spila fyrir England frekar en Írland.

Hinn tvítugi Rice skrifaði undir nýjan samning í desember og er samningsbundinn West Ham til 2024 með möguleika á einu ári til viðbótar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner