Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 20. júní 2020 21:25
Arnar Laufdal Arnarsson
Brynjar Björn: Fullkomin frammistaða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
" Nánast fullkomin frammistaða ef það er til, við komum gíraðir inn í leikinn, við vissum okkar hlutverk, við vorum búnir að skoða KR-ingana mátulega vel og fara yfir þá eins og við gátum. þeir eru með góða leikmenn sem geta komið upp með einhvað óvænt, vinnusemin og gæðin sem við sýndum í dag voru góð og frammistaðan okkar í dag verðskuldaði þrjú stig" Sagði Brynjar Björn eftir ótrúlegan 0-3 sigur gegn KR í dag.

Sigurður Hrannar var frábær í marki HK í fjarveru Arnars Freys Ólafssonar, er hann farinn að setja pressu á Arnar?
"Nei nei, hann bara sýndi það í dag að hann getur vel leyst þetta fyrir okkur og er búinn að vera frábær varamarkmaður fyrir okkur seinustu tvö ár en hann var frábær, greip vel inn í, varði vel og gerði held ég það sem hann bjóst við af sjálfum sér"

Lestu um leikinn: KR 0 -  3 HK

HK hafa náð í tvö sigra úr seinustu þrem leikjum gegn KR í Pepsi-Max deildinni, hvað er það sem HK gera til að ná í sigrana gegn KR?

"Góð spurning, ég held bara að frammistaðan og vinnusemin þarf að vera í lagi, þarft að geta spilað aðeins upp völlinn ekki bara farið á fyrstu sendingu upp völlinn og vona það besta en fyrstu tvö mörkin voru þannig að við náðum aðeins að opna KR-ingana sem skiluðu tveim góðum mörkum"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Diddi: Ólýsanleg tilfinning
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner