"Þetta er bara ólýsanleg tilfinning, ætla ekki að ljúga það var ágætis fiðringur í manni fyrir leik en ég held það sé bara eðlilegt, bara mikilvægt að stilla hausinn rétt og koma kaldur inn í þessar aðstæður" Sagði Sigurður Hrannar Björnsson eftir ótrúlegan sigur gegn KR í dag.
"Ég er búinn að fylgjast með Arnari núna í tvö ár, Arnar er einn af, ef ekki besti markmaðurinn í þessari deild og ég reyndi bara að apa aðeins eftir honum í vikunni, fór mikið og lyfti og fór snemma að sofa, borðaði vel og teygði"

Lestu um leikinn: KR 0 - 3 HK
Diddi fékk mikla gagnrýni eftir leikinn gegn FH, hafði það einhver áhrif á hann?
"Nei það hafði engin áhrif á mig, þeir sem horfðu á leikinn sáu ég var að verja vel, mér leið bara mjög vel í FH leiknum og fannst ég standa mig mjög vel, gerði mistök og þegar markmenn gera mistök kostar það mark en ég tók bara það jákvæða úr leiknum inn í þennan leik"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir