„Það er mjög mikilvægt að byrja á að ná í þrjú stig og ég er mjög glaður. Þetta var góður leikur og við vorum meira með boltann, ætluðum okkur að fá þessi þrjú stig," sagði Gonzalo Zamorano, fyrri markaskorari Ólafsvíkinga, eftir sigur á Vestra í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 - 0 Vestri
Er Gonzalo ánægður með blönduna í liðinu, eru menn að tengja vel saman?
„Já allir eru glaðir, andrúmsloftið er gott. Við erum að æfa vel undir stjórn Jóns Páls og við vitum hvað við viljum."
Gonzalo var valinn maður leiksin fyrir frammistöðu sína í dag.
„Takk fyrir. Ég er mjög glaður hérna í Ólafsvík. Það er gott að vera hér og er spenntur fyrir tímabilinu. Ég ætla mér að ná upp sjálfstrausti aftur og vona að þetta verði gott tímabil fyrir okkur."
Athugasemdir