„Ég er sáttur, hrikalega sáttur. Það er ofboðslega gott að vinna fyrsta leik," sagði Igor Bjarni Kostic, þjálfari Hauka, eftir 2-1 sigur á Fjarðabyggð í fyrsta leik í 2.deildinni í sumar.
Staðan í hálfleik var 0-1 fyrir gestina frá Austurlandi en Haukum tókst að snúa þessu við í seinni hálfleik og sigra leikinn.
„Mér fannst við spila mjög vel á köflum og svo tækluðum við það sem Fjarðabyggðarmenn komu með hérna síðustu 20 mínúturnar bara mjög vel. Mér fannst við sigla þessu bara nokkuð örugglega í höfn."

Lestu um leikinn: Haukar 2 - 1 Fjarðabyggð
Það var allt annað að sjá Hauka í seinni hálfleik en þeim fyrri. Í ljósi þess var Igor var spurður út í hálfleiksræðuna.
„Þetta var bara mjög gott spjall. Fyrri hálfleikurinn var brösugur og við komumst aldrei í einhvern takt. Við vorum aðeins að gera vitlausa hluti hér og þar og við spjölluðum bara vel um þá og náðum að stilla okkur vel af sem betur fer."
Haukar hafa fengið inn nokkra nýja leikmenn fyrir tímabilið og ætlar Igor sér að styrkja liðið enn frekar.
„Það eru tveir búnir að vera að æfa með okkur, ungir að sjálfsögðu, efnilegir strákar. Vonandi tökum við allavega einn af þeim. "
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Athugasemdir