Önnur umferð Pepsi Max-deildar karla hefst í dag og verða þrír leikir spilaðir. Hinir þrír leikir umferðarinnar fara fram á morgun.
Þorkell Máni Pétursson var með þrjá rétta þegar hann spáði í fyrstu umferðina. Ingólfur Sigurðsson, leikmaður KV og einn af meðlimum Innkastsins, spáir í spilin fyrir aðra umferðina.
Markaðurinn í Draumaliðsdeild Eyjabita lokar klukkan 13:30. Er þitt ið klárt?

KA 1 - 0 Víkingur R. (13:30 í dag)
Guðmundur Steinn Hafsteinsson þakkar traustið með skallamarki eftir hornspyrnu.
Grótta 0 - 2 Valur (15:45 í dag)
Grótta gefur Valsmönnum leik, en gestirnir sigla þessu þægilega heim að lokum.
KR 2 - 1 HK (18:00 í kvöld)
Íslandsmeistararnir skora tvö snemma og HK klórar í bakkann í byrjun seinni. Þá setur KR í sinn fræga lás og lokar þessu fagmannlega.
Fjölnir 1 - 1 Stjarnan (16:45 á morgun)
Fjölnir nær í annan punkt sumarsins í annars tíðindalitlum leik.
Fylkir 2 - 4 Breiðablik (19:15 á morgun)
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar verður í Lautinni. Fullt af mörkum og færum. Thomas Mikkelsen með fyrstu þrennu sumarsins.
FH 1 - 2 ÍA (19:15 á morgun)
Óvæntustu úrslit umferðarinnar. Tryggvi Hrafn með tvennu eftir að FH kemst yfir.
Fyrri spámenn:
Þorkell Máni Pétursson (3 réttir)
Þessir dæma 2. umferð - Helgi Mikael með flautuna í Krikanum https://t.co/OySLJ0YpQo
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) June 20, 2020
Athugasemdir