Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. júní 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Boltinn byrjar að rúlla aftur í Serie A
Andrea Belotti og félagar í Torino mæta Parma.
Andrea Belotti og félagar í Torino mæta Parma.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir eru á dagskrá þennan laugardaginn þegar ítalska úrvalsdeildin snýr aftur eftir langt hlé vegna kórónuveirufaraldursins.

Síðast var spilað í ítölsku úrvalsdeildinni þann 9. mars, en núna er loksins komið að því að boltinn fari aftur að rúlla í deildinni. Það verður leikið fyrir luktum dyrum.

Fyrri leikur dagsins hefst klukkan 17:30 þegar Torino tekur á móti Parma í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Torino er í 15. sæti og Parma í níunda sæti.

Í síðari leik dagsins, sem hefst 19:45, tekur Hellas Verona á móti Cagliari. Hellas Verona er í áttunda sæti og Cagliari í tólfta sæti. Þess má geta að aðeins tíu stig aðskilja Hellas Verona og liðið í 18. sæti, síðasta fallsætinu, Lecce.

laugardagur 20. júní
17:30 Torino - Parma (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Verona - Cagliari
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner