Championship-deildin er byrjuð á nýjan leik og eru tveir leikir í gangi þessa stundina. Þar á meðal er leikur Fulham og Brentford í London, en það eru tvö lið sem er í umspilssæti.
Patrik Sigurður Gunnarsson er á mála hjá Brentford, en hann er ekki í leikmannahópi liðsins í dag. Hann talaði um það í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði þar sem hann talaði um það að regla varðandi Englendinga hindraði það að hann væri á bekknum hjá Brentford.
Brentford er án lykilmanns í dag. Franski framherjinn Bryan Mbeumo, sem skorað hefur 14 mörk í 34 leikjum á tímabilinu, er ekki með. Ástæðan er sú að Mbeumo var greindur með kórónuveiruna.
Mbeumo er núna í sóttkví næstu daga, en hann fylgist með sínum mönnum heima í stofu í dag.
Come on boys 💥🔴⚪️ #FULBRE https://t.co/I0PXux9AJ5
— Bryan Mbeumo (@BMbeumo19) June 20, 2020
Athugasemdir