Karim Benzema var orðaður við Napoli en Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, blés á sögusagnirnar og sagðist ekki þurfa gamlan karl eins og hann.
Radamel Falcao og Angel Di Maria voru einnig orðaðir við Napoli en De Laurentiis kallaði Di Maria einnig gamlan og sagði að Radamel Falcao væri hættur að geta skorað.
Benzema er búinn að svara forsetanum fullum hálsi. Hann birti 'sögu' á Instagram með svarinu sínu.
„Annar brjálæðingur sem bætist á listann. Nían gerir ykkur klikkaða," skrifaði Benzema, sem er númer níu hjá Real Madrid.
Athugasemdir