Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júlí 2018 18:30
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Þróttar R. og Njarðvíkur: Emil Atla í hóp
Emil Atlason er á bekknum
Emil Atlason er á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Núna klukkan 19:15 mætast Þróttur R. og Njarðvík á Eimskipsvellinum í Laugardalnum. Leikurinn er liður í tólftu umferð Inkasso deild karla.

Heimamenn í Þrótti sitja fyrir leikinn í sjötta sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að gestirnir í Njarðvík eru í tíunda sæti með 10 stig en það er jafnmikið og ÍR sem að er í fallsæti. Byrjunarliðin eru komin hingað inn.

Þróttur gerir eina breytingu á liði sínu en Finnur Tómas Pálmason kemur útúr liðinu á kostnað Hlyns Haukssonar. Emil Atlason sem hefur verið að glíma við erfið meiðsli er á bekknum ásamt Loga Tómassyni sem að Þróttur fékk á láni frá Víkingi R.

Gestirnir í Njarðvík gera fjórar breytingar á liði sínu. Út koma þeir Helgi Þór Jónsson, Stefán Birgir Jóhannesson, Ari Már Andrésson og Sigurbergur Bjarnason. Í stað þeirra koma Neil Slooves, Theodór Guðni, Bergþór Ingi og Arnór Björnsson. Liðin má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Þróttar R.:
1. Arnar Darri Pétursson (m)
4. Hreinn Ingi Örnólfsson (f)
6. Árni Þór Jakobsson
7. Daði Bergsson
9. Viktor Jónsson
13. Birkir Þór Guðmundsson
14. Hlynur Hauksson
17. Jasper Van Der Heyden
22. Rafn Andri Haraldsson
23. Guðmundur Friðriksson
26. Kristófer Konráðsson

Byrjunarlið Njarðvíkur:
1. Robert Blakala (m)
3. Neil Slooves
4. Brynjar Freyr Garðarsson
5. Arnar Helgi Magnússon
8. Kenneth Hogg
10. Theodór Guðni Halldórsson
13. Andri Fannar Freysson (f)
17. Bergþór Ingi Smárason
22. Magnús Þór Magnússon
23. Luka Jagacic
24. Arnór Björnsson
Athugasemdir
banner
banner
banner