Heimild: Leiknir.com
Vigfús Arnar Jósepsson mun stýra Leikni R. út tímabilið í Inkasso-deildinni.
Hann tók við liðinu eftir að Kristófer Sigurgeirsson var rekinn og er mikil ánægja í Bteiðholtinu með hans störf.
Hann tók við liðinu eftir að Kristófer Sigurgeirsson var rekinn og er mikil ánægja í Bteiðholtinu með hans störf.
Sigurður Heiðar Höskuldsson verður aðstoðarþjálfari Fúsa en hann hefur lokið UEFA A þjálfaragráðu.
Sigurður hefur reynslu af þjálfun eftir að hafa þjálfað yngri flokka hjá Breiðablik, ÍR og Stjörnunni undanfarin ár.
Leiknir er um miðja deild, með 14 stig eftir 12 umferðir.
Athugasemdir