Heimild: Goal.com
Justin Kluivert vonar að hann nái einn daginn sömu stöðu og goðsögnin Francesco totti hjá Roma.
Kantmaðurinn gekk í raðir ítalska félagsins frá Ajax í sumar eftir að hafa skorað 10 mörk í 30 leikjum í hollensku deildinni á síðustu leiktíð.
Hann er sonur Patrick Kluivert sem allir eiga að þekkja og gerði fimm ára samning við ítalska félagið.
„Ég vil sýna hvað ég get gert og fá að sanna mig. Ég vil gera betur en ég gerði í Hollandi," sagði Kluivert í gær.
„Ég get og verð að bæta mig mikið. Ég get ekki beðið eftir að tímabilið hefjist því við getum gert stóra hluti með þetta lið."
Kluivert er aðeins 19 ára gamall og kemur inn í lið sem þekkist varla án Totti sem hefur lagt skóna á hilluna.
„Francesco Totti er frábær fyrirmynd. Hann er goðsögn hjá félaginu og allir sem koma til Roma líta upp til hans," sagði Kluivert.
„Einn daginn vil ég verða eins og hann, að hafa þessa virðingu fólks, en það er bara hægt að ná því með að sanna sig innan vallar."
Athugasemdir