Manchester City og Everton eru að berjast um að klófesta hinn 14 ára gamla Omari Forson úr herbúðum Tottenham.
Forson er örvfættur sóknarmaður og er hægt að finna myndbönd af honum leika listir sínar á YouTube. Rúmlega 350 þúsund manns hafa horft á vinsælasta myndbandið sem er af honum þegar hann er aðeins sex ára gamall.
Fjölskylda hans vill sjá hann fara til City vegna þess að þar er lagt gríðarlega mikið í uppeldisstarfið.
Forson var hjá West Ham áður en hann var fenginn til Tottenham en hann hefur verið að æfa með Everton undanfarið samkvæmt heimildarmanni Daily Mail.
Athugasemdir