Sadio Mane mun klæðast treyju númer 10 hjá Liverpool á tímabilinu en hann hefur verið númer 19 frá komu sinni frá Southampton fyrir tveimur árum.
Treyjunúmerið losnaði þegar Philippe Coutinho var seldur til Barcelona í janúar en menn á borð við John Barnes, Joe Cole og Michael Owen hafa borið númerið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Mane er 26 ára gamall og hefur gert 33 mörk í 73 leikjum fyrir Liverpool. Á síðasta tímabili skoraði Mane 20 mörk, 10 í deild og 10 í Meistaradeild.
Naby Keita fær treyjunúmerið 8, Roberto Firmino er númer 9 og Mohamed Salah er númer 11.
Stuðningsmenn sem hafa keypt 2018-19 treyju Liverpool með 'Mane 19' aftan á geta breytt númerinu frítt.
Athugasemdir