Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri hafði betur gegn því lettneska í æfingaleik í gær, með tveimur mörkum gegn engu.
Karl Friðleifur Gunnarsson og Þórður Gunnar Hafþórsson gerðu mörk leiksins sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Báðir markaskorararnir eru fæddir 2001. Karl á einn keppnisleik að baki með meistaraflokki Blika á meðan Þórður hefur fengið mikinn spilatíma með Vestra síðustu tvö ár.
Liðin mætast aftur í Ríga á morgun, laugardag.
U18 karla vann góðan tveggja marka sigur á Lettlandi á fimmtudag. Hér má sjá mörkin úr leiknum. ISL goals from 2-0 U18 friendly win over @kajbumba in Riga on Thursday. #fyririsland pic.twitter.com/8vYw7iljLr
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 20, 2018
Athugasemdir