Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. júlí 2018 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Son búinn að skrifa undir nýjan samning við Tottenham
Mynd: Getty Images
Son Heung-min er búinn að skrifa undir nýjan samning við Tottenham eftir að hafa átt frábært tímabil með þeim.

Son er 26 ára gamall og var í algjöru lykilhlutverki á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 18 mörk og lagði 11 upp í öllum keppnum.

Samningur Son, sem skoraði tvö mörk í þremur leikjum á HM með Suður-Kóreu, er til fimm ára og rennur því ekki út fyrr en 2023.

Son er fjölhæfur sóknarmaður sem er jafnvígur á hægri og vinstri. Hann er yfirleitt notaður á kantinum hjá Tottenham þar sem hann er í baráttu við Erik Lamela og Lucas Moura um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner