David Anderson, fréttamaður hjá The Mirror, heldur því fram að þrjú Championship félög séu á höttunum eftir Viðari Erni Kjartanssyni.
Steve McClaren stýrir QPR og hefur áhuga á Viðari eftir að hafa starfað með honum hjá Maccabi Tel Aviv.
Middlesbrough og West Brom hafa einnig áhuga á Viðari sem er falur fyrir um 3,5 milljónir punda.
Viðar er 28 ára gamall og hefur alla tíð verið iðinn við markaskorun. Hjá Maccabi hefur hann til að mynda skorað 42 mörk í 71 leik en þar áður gerði hann 17 í 26 fyrir Malmö, 13 í 35 fyrir Jiangsu Sainty og 31 í 33 fyrir Vålerenga.
Middlesbrough, West Brom and QPR are chasing Maccabi Tel Aviv striker Vidar Orn Kjartansson. Steve McClaren worked with the Iceland international at Maccabi. Would cost around £3.5m.
— David Anderson (@MirrorAnderson) July 20, 2018
Athugasemdir