Sóknarmaðurinn Claudio Pizarro segir að næsta tímabil verði hans síðasta sem fótboltamaður.
Pizarro verður 41 árs í október, en hann skrifaði undir nýjan samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Werder Bremen eftir síðustu leiktíð. Á síðasta tímabili skoraði hann sjö mörk í 30 leikjum í öllum keppnum.
„Þetta er mitt síðasta ár, það er klárt mál," sagði Pizarro að því er kemur fram á Goal.com.
Í heildina á hann 766 leiki að baki á ferlinum, 626 þeirra fyrir FC Bayern og Werder Bremen.
Hann gekk í raðir Bremen í fyrra og var það í fjórða sinn á ferlinum sem hann skrifaði undir samning við félagið.
Athugasemdir