Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. júlí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viss um að fá Henderson aftur frá Man Utd
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, er viss um það að markvörðurinn Dean Henderson komi aftur til félagsins.

Henderson er leikmaður Manchester United. Hann var í láni hjá Sheffield United á síðustu leiktíð og spilaði vel er liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina.

Henderson kemur til með að verja mark Sheffield United í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

„Ég er viss um að Dean muni ganga í okkar raðir á næstu dögum. Strákurinn átti stórkostlegt tímabil fyrir okkur og vill koma aftur," sagði Wilder við Sheffield Live!.

David de Gea er markvörður Manchester United og því lítill sem enginn möguleiki á því að Henderson fái marga leiki hjá United á næsta tímabili. Það verður góð reynsla fyrir þennan efnilega leikmann að spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner