„Ég veit ekki hvað ég á að segja. Mig langaði til að grenja eftir leik. Ég var svo ótrúlega svekkt,“ sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, eftir að hafa fengið á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn KR í kvöld. Leikurinn endaði 1-1.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Þróttur R.
Þrátt fyrir að vera svekkt með að missa niður forystuna var fyrirliðinn ánægð með frammistöðu síns liðs.
„Mér fannst við enn og aftur sýna þessa baráttu sem við höfum verið að sýna og við vorum að ná góðu spili. Þetta var stundum svolítið erfitt á síðasta þriðjungi en annars bara fínt.“
Þróttarar urðu fyrir áfalli rétt fyrir leik en hin öfluga Mary Alice Vignola meiddist í upphitun og gat ekki tekið þátt.
„Það var svolítið sjokk fyirr okkur. Hún er rosalega góð og mikilvæg fyrir okkur. Það var sjokk en það kemur auðvitað maður í manns stað og við leystum þetta vel,“ sagði Álfa um fjarveru lykilleikmannsins.
Þróttur hefur nú gert þrjú jafntefli í röð og liðið er með 6 stig í 6. sæti deildarinnar.
„Það skiptir máli að fá einhver stig í pottinn. Við erum að sýna að við getum betur en okkur var spáð en við þurfum að halda áfram og reyna að ná þremur stigum.“
Hægt er að horfa á allt viðtalið við Álfu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir