Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 20. júlí 2020 20:42
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Andri Ólafs: Geggjað að koma hingað og halda hreinu og klára leikinn
Andri og Birkir í leik hjá ÍBV í sumar
Andri og Birkir í leik hjá ÍBV í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
"Sáttur. Ánægður með þetta. Pínu óöruggur með fyrri hálfleikinn eða fannst þær þokkalega vera að pressa á okkur en fannst í seinni hálfleik ekkert benda til þess að þær væru að fara að jafna þennan leik." sagði Andri Ólafsson þjálfari ÍBV eftir 1-0 útisigur á FH í kvöld.

ÍBV hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð og er því sigurinn í kvöld langþráður.

"Heldur betur, erum ekki búin að vinna núna í fjórum leikjum. Bara geggjað að koma hingað og halda hreinu og klára leikinn." 

Lestu um leikinn: FH 0 -  1 ÍBV

Það voru gríðarlega miklar breytingar á liði ÍBV eftir síðasta tímabil og nánast um nýtt lið að ræða. Andra finnst þetta vera að pússlast vel saman.

"Við erum ekki með soldið nýtt lið, við erum bara með nýtt lið. En við erum bara ánægðar og við vitum að þetta tekur tíma, þetta er ekki bara einhver eins árs uppbygging. Vonandi að við getum bætt aðeins ofan á þetta, við fáum allavega nóg af færum í dag finnst mér til að skora fleiri mörk." sagði Andri

Næsti leikur ÍBV er gegn Selfoss eftir rúma viku. Andra líst mjög vel á það.

"Hrikalega gaman. Leikur í Eyjum á móti Selfoss og Alfreð vini mínum, mér hlakkar til." sagði Andri að lokum.
Athugasemdir
banner
banner